5. febrúar 2010

Málþing á alþjóðlega netöryggisdaginn

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2010 verður haldinn 9. febrúar næstkomandi undir yfirskriftinni „Hugsaðu áður en þú sendir”. Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl 14.30-16.30.

HUGSAÐU ÁÐUR EN ÞÚ SENDIR

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2010 verður haldinn 9. febrúar næstkomandi undir yfirskriftinni „Hugsaðu áður en þú sendir”. Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl 14.30-16.30. Á málþinginu verður m.a. fjallað um: netið og vinasöfnun á félagsnetsíðum, myndbirtingar, rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks, friðhelgi og persónuvernd, lögreglurannsókn mála og veitt verða verðlaun í nemendasamkeppni. Annars er nánari dagskrá að finna hér að neðan og í viðhengi.

Fundarstjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson.

Dagskrá:
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið
Hrannar Pétursson, forstöðumaður almennatengsla hjá Vodafone: „Ringulreiðarmálið” - Myndbirtingar barna og unglinga á netinu. Hvað segja netþjónustuaðilar?
Einar Norðfjörð og Anna Kristína Lobers, ungmennaráði SAFT: Reynsluheimur unga fólksins: Vinasöfnun og myndbirtingar á félagsnetsíðum
Halldór J. Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi: Friðhelgi á jaðri netsins
Jónas Kristjánsson, ritstjóri og hestamaður: Þolmörkin færðust til
Salvör Kristjana Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands: Netsiðferði - Persónuvernd og pólitískur áróður
Sólveig Jakobsdóttir, Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun, Menntavísindasviði Háskóla Íslands: Félagsnet í fræðilegu samhengi: Rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks á netinu
Sigríður J. Hjaltested, aðstoðarsaksóknari, Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu:  Rannsókn mála tengd netinu
Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, og Emil Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Nýherja, veita verðlaun í nemendasamkeppni um gerð jafningjafræðsluefnis um jákvæða og örugga netnotkun
Pallborðsumræður
Veitingar

Málþingið verður sent beint út á netinu.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SAFT (www.saft.is).


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica