26. apríl 2016

Lausnaþing um málefni barna sem passa ekki í „kassann“

Lausnaþing til að ræða málefni barna sem passa ekki í „kassann“ verður haldið fimmtudaginn 28. apríl, milli kl. 14 og 17. Umboðsmaður barna stendur fyrir þinginu, ásamt ýmsum félagsamtökum sem vinna að málefnum barna.

Rettindi Og Radgjoef

Lausnaþing til að ræða málefni barna sem passa ekki í „kassann“ verður haldið fimmtudaginn 28. apríl, milli kl. 14 og 17 í Skriðu í Stakkahlíð (Háskóla Íslands). 

Allir velkomnir. Skráning fer fram hér. 

Umboðsmaður barna stendur fyrir þinginu, ásamt ýmsum félagsamtökum sem vinna að málefnum barna. 

Það hefur lengi verið vitað að þegar börn með einhvers konar sérþarfir passa ekki í „kassann“ á kerfið erfitt með að takast á við það. Nýútkomin skýrsla ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga, annað og þriðja þjónustustig, staðfesti það sem fagfólk og aðstandendur hafa lengi vitað. Börn eru allt of lengi á biðlistum. Það hefur áhrif á líðan þeirra og og fjölskyldna þeirra og hægir á mögulegum framförum þeirra í þroska og námi. Á lausnaþinginu verður leitast við að skoða hvað sé hægt að gera í þessum málum. 

Dagskrá

14.00 Lausnaþingið sett, Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, fundarstjóri.

14.05 Jakob Rúnarsson, deildarstjóri á stjórnsýslusviði Ríkisendurskoðunar. Kynning á helstu forsendum og niðurstöðum stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar á geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga á öðru og þriðja þjónustustigi.

14.25 Evald Sæmundsen PhD, sviðsstjóri rannsókna á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
Erindi: Þjónusta við börn - ýmsar pælingar.

14.45 Erna og Steinunn, mæður.
Erindi: Að eiga barn með fjölþættan vanda.

15.00 Kaffihlé.

15.15 Kristín Björnsdóttir og Haukur Guðmundsson. Kristín er dósent í fötlunarfræði, umsjónarmaður starfstengds diplómanáms og nýr umsjónarmaður námsbrautar um sérkennslu. Haukur er háskólanemi.
Erindi: Samvinna í skóla án aðgreiningar.

15.35 Inga Birna Sigfúsdóttir, Sjónarhóli. Inga Birna er menntuð á sviði uppeldis-, menntunar- og þroskaþjálfafræða ásamt mannauðsstjórnun og hefur starfað sl. 9 ár sem ráðgjafi á Sjónarhóli, ráðgjafamiðstöð.
Erindi: Lausnamiðuð nálgun í teymisvinnu.

15.55 Kristín María Indriðadóttir, verkefnastjóri í fjölgreinadeild Lækjarskóla í Hafnarfirði og hefur unnið í mörg ár með „einstaka“ unglinga með fjölbreyttar þarfir í sínu lífi.
Erindi: Einstakir unglingar - önnur nálgun.

16.15 Amanda Watkins, aðstoðarforstjóri Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar og sérþarfir, kynnir úttekt á framkvæmd skóla án aðgreiningar hér á landi sem Evrópumiðstöðin annast á þessu ári. Hún kynnir einnig lauslega starfsemi Evrópumiðstöðvarinnar.

16.35 Pallborð – umræður.


ADHD samtökin, Barnaheill - Save the Children á Íslandi, Einhverfusamtökin, Félag skólastjórnenda í Reykjavík, Heimili og skóli, Landssamtökin Þroskahjálp, Olnbogabörn, SAMFOK, Sjónarhóll, umboðsmaður barna, Umhyggja og  UNICEF standa fyrir þinginu. 

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica