3. desember 2007

Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum - menntun fagstétta - Hádegisfundur Barnaheilla

Barnaheill stendur fyrir hádegisfundi 5. desember nk. undir yfirskriftinni Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum - menntun fagstétta.
Barnaheill stendur fyrir hádegisfundi 5. desember nk. undir yfirskriftinni Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum - menntun fagstétta.
 
Hvernig eru starfsstéttir sem vinna með börnum, eða að málefnum þeirra, búnar undir það að takast á við mál tengd kynferðislegu ofbeldi gegn börnum? Hvernig búa íslenskir háskólar nemendur sína undir slíkt? Þessum spurningum var leitað svara við í úttekt sem Barnaheill létu gera sumarið 2007. Miðvikudaginn 5. desember boða Barnaheill til hádegisfundar í Kornhlöðunni frá kl. 12:00- 13:00. Á fundinum verða kynntar niðurstöður úttektarinnar. Enn fremur verður fjallað um  aðkomu Evrópuhóps Barnaheilla að baráttunni gegn mansali. Fundurinn er framlag Barnaheilla í 16 daga átaki félagasamtaka gegn kynbundnu ofbeldi.
 
Vinsamlegast skráið þáttöku á: raningvars@barnaheill.is
Boðið verður upp á veitingar.

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica