Könnun um samskipti ungmenna á netinu
Tæplega 500 ungmenni tóku þátt í könnun ráðgjafarhóps umboðsmanns barna um samskipti ungmenna á netinu. Niðurstöðurnar voru kynntar á ráðstefnu BUGL um töfra tengslanna sem fór fram á Hilton Reykjavík Nordica 4. september sl.
Ráðgjafarhópurinn sendi könnunina í sumar til vinnuskóla í 20 fjölmennustu sveitarfélögum landsins. Þar var spurt um upplifun og reynslu ungmenna af samskiptum á netinu. Axel, Kolbrún, Magnea og Stef kynntu niðurstöðurnar fyrir hönd ráðgjafarhópsins á ráðstefnu BUGL.

Alls töldu 69% svarenda að fólk væri harkalegra í samskiptum á netinu en í raunveruleikanum. Þá höfðu 37% upplifað vinaslit í gegnum netið og 38% höfðu verið útilokuð úr hópspjalli á samfélagsmiðlum. Af þeim sem höfðu verið útilokuð vissu 55% ekki ástæðuna.
Þá höfðu 78%, fengið vinabeiðni frá ókunnugum. Þriðjungur þeirra samþykkti beiðnina en tveir þriðju gerðu það ekki. Þá sögðust 34% hafa fengið vinabeiðni frá einhverjum sem reyndist ekki vera sá sem viðkomandi sagðist vera.
Ráðgjafarhópurinn taldi niðurstöðurnar sýna að mörg ungmenni upplifðu erfið og neikvæð samskipti á netinu. Hópurinn benti jafnframt á að nafnleynd gæti auðveldað fólki að segja hluti sem það myndi síður segja undir eigin nafni.

Ráðgjafarhópurinn leggur áherslu á aukna fræðslu í skólum um samskipti á netinu, einkum um virðingu, mörk og ábyrgð. Einnig þurfi að styrkja færni ungmenna til að takast á við ágreining og erfið samtöl. Foreldrar og skólar hafa mikilvægu hlutverki að gegna í þeirri vinnu.
Þá leggur hópurinn til að útbúin verði aðgengileg upplýsingasíða um samskipti og netöryggi þar sem ungmenni geti nálgast fræðslu, ráð og leiðbeiningar.
Að mati ráðgjafarhópsins á markmiðið ekki að vera að halda ungmennum frá netinu, heldur að skapa stafrænt umhverfi þar sem þau geta myndað heilbrigð tengsl, leyst ágreining með virðingu og fundið fyrir öryggi.

