3. febrúar 2026

Könnun um innleiðingu mats á áhrifum á börn hjá Stjórnarráði Íslands

Umboðsmaður barna hefur óskað eftir því að ráðuneytin svari spurningakönnun embættisins um innleiðingu mats á áhrifum á börn hjá ráðuneytunum.

Embætti umboðsmanns barna sendi í gær bréf á Stjórnarráð Íslands þar sem óskað var eftir upplýsingum um innleiðingu á mati á áhrifum á börn og hvernig leiðarvísir um framkvæmd mats á áhrifum á börn, sem gefinn var af mennta- og barnamálaráðuneytinu árið 2024, hafi reynst. Leiðarvísirinn var unninn í samvinnu við embætti umboðsmanns barna.

Tilgangur leiðarvísisins var að liggja til grundvallar við stefnumótandi ákvarðanatöku stjórnvalda, en framkvæmd mats á áhrifum á börn er hluti af innleiðingu Barnasáttmálans. Umboðsmaður barna hefur ávalt lagt ríka áherslu á mikilvægi þess að innan stjórnkerfisins verði innleitt kerfisbundið mat á áhrifum á börn. 

Spurningakönnunin til ráðuneytanna mun nýtast embættinu í því að greina hvernig innleiðing matsins innan ráðuneytanna hefur gengið. 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica