16. október 2006

Klámnotkun og kynlífshegðun unglinga - Opinn fyrirlestur

Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands stendur fyrir opinberum fyrirlestri um klámnotkun og kynlífshegðun unglinga fimmtudaginn 19. október kl. 15.00 í stofu 132 í Öskju. 

Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands stendur fyrir opinberum fyrirlestri fimmtudaginn 19. október í stofu 132 í Öskju kl. 15.00.  Guðbjörg Hildur Kolbeins, doktor í fjölmiðlafræði, mun þar flytja fyrirlesturinn  Klámnotkun og kynlífshegðun unglinga: Eru allir krakkar á kafi í klámi?

Að beiðni norrænu ráðherranefndarinnar var samnorræn rannsókn á klámnotkun ungs fólks og viðhorfum þess til kláms og kynlífs framkvæmd á síðasta ári.  Niðurstöðurnar voru kynntar á ráðstefnu í Ósló í september og hafa fjölmiðlar, sem fjallað hafa um rannsóknina, iðulega farið rangt með staðreyndir. Hér á landi tóku 323 unglingar á aldrinum 14 til 18 ára þátt í rannsókninni . Verða helstu niðurstöður kynntar í erindinu, og verður m.a. fjallað um tengsl klámnotkunar við kynlífshegðun unglinga.

Guðbjörg Hildur Kolbeins er doktor í fjölmiðlafræði og hefur undanfarin ár m.a. kennt námskeið um áhrif kláms og ofbeldis við Háskóla Íslands

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica