4. júní 2012

Innleiðing Barnasáttmálans - Málstofa á morgun

Umboðsmaður barna minnir á málstofu um innleiðingu Barnasáttmálans á Norðurlöndunum sem haldin verður á morgun, þriðjudaginn 5. júní, frá klukkan 9:00 til 11:30 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands.

Umboðsmaður barna minnir á málstofu um innleiðingu Barnasáttmálans á Norðurlöndunum sem haldin verður á morgun, þriðjudaginn 5. júní, frá klukkan 9:00 til 11:30 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands.

Í málstofunni munu umboðsmenn barna í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi ásamt starfsmanni Barnaráðsins í Danmörku og Talsmanni barna á Grænlandi segja frá því hvernig unnið hefur verið að innleiðingu Barnasáttmálans á vettvangi ríkis og sveitarfélaga í þeirra löndum. Markmið málstofunnar er að læra af reynslu nágrannalandanna og gera sér betur grein fyrir því hvað innleiðing Barnasáttmálans felur í sér.

Málstofan er öllum opin meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis. Málstofan nýtist sérstaklega þeim sem koma að ákvarðanatöku varðandi börn, s.s. starfsfólki ríkis og sveitarfélaga og stofnana sem vinna með börnum. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið ub@barn.is.    


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica