13. október 2022

Innleiðing Barnasáttmálans

Umboðsmaður barna hefur sent bréf til allra ráðuneyta og ríkisstofnana þar sem farið er fram á að gerð sé grein fyrir þeim ráðstöfunum sem gripið hefur verið til og sem miða að því að innleiða Barnasáttmálann í starfseminni.

Sem aðili að Barnasáttmálanum ber íslenska ríkinu að gera allar viðeigandi ráðstafanir á sviði löggjafar og stjórnsýslu til að réttindi þau sem viðurkennd eru í sáttmálanum komi til framkvæmda. Samkvæmt lögum nr. 83/1994, um umboðsmann barna, ber umboðsmanni barna að stuðla að því að Barnasáttmálinn sé virtur og vinna að því að tryggja þátttöku barna í allri stefnumótun og ákvarðanatöku í málefnum barna hjá ríki og sveitarfélögum. 

Áframhaldandi innleiðing Barnasáttmálans er viðvarandi verkefni sem krefst þess að allar stofnanir sem aðkomu hafa að málefnum barna með einum eða öðrum hætti eða vinna að málefnum sem bö
rn láta sig varða, vinni að því að bæta aðgengi barna að þjónustu og upplýsingum og tryggi nauðsynlega þátttöku þeirra í ákvarðanatöku og stefnumótun þar sem við á. 

Umboðsmaður barna hefur því sent bréf til allra ráðuneyta og stofnana, með könnun, sem ætlað er að leiða í ljós til hvaða aðgerða ráðuneyti og stofnanir hafa gripið til, í því skyni að innleiða Barnasáttmálann í starfsemi sinni, til þess að unnt sé að leggja mat á stöðu innleiðingar sáttmálans og þörfina á frekari aðgerðum. 

Bréf umboðsmanns barna til ríkisstofnana.

Könnunin er nú framkvæmd í annað sinn, en sú fyrsta var framkvæmd í febrúar 2020. 

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica