19. maí 2009

Hvernig er að vera barn á Íslandi?

Hátt í þrjúþúsund grunn- og leikskólanemendur í fjörutíu skólum hafa í vetur tekið þátt í verkefni umboðsmanns barna þar sem þau tjá sig í myndrænu og rituðu máli hvernig það er að vera barn á Íslandi. Markmið þessa verkefnis er að heyra raddir barna og gefa þeim tækifæri á að tjá sig með þeim hætti sem þeim hentar.

Sýning á vegum Umboðsmanns barna 22. maí - 28. júní 2009

Hátt í þrjúþúsund grunn- og leikskólanemendur í fjörutíu skólum hafa í vetur tekið þátt í verkefni umboðsmanns barna þar sem þau tjá sig í myndrænu og rituðu máli hvernig það er að vera barn á Íslandi. Markmið þessa verkefnis er að heyra raddir barna og gefa þeim tækifæri á að tjá sig með þeim hætti sem þeim hentar.

Verkefnið tekur mið af 12. og 13. grein barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Öllum grunn – og leikskólum var boðin þátttaka og var kennurum og nemendum frjálst að vinna það á hvern þann hátt sem þau kusu, svo framarlega að það félli að þema verkefnisins sem var nærsamfélagið.

Verk barnanna verða sýnd í Gerðubergi í tengslum við Dag barnsins, sem að þessu sinni verður sunnudaginn 24. maí.  Sýningin verður hins vegar opnuð föstudaginn 22. maí kl 14 og stendur til 28. júní.

Allir áhugasamir eru hvattir til að koma og skoða afraksturinn og þá sérstaklega börn og fjölskyldur þeirra sem vilja eiga góða stund saman í listfengu umhverfi.  

        


 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica