21. mars 2011

Hlustið á okkur - Ráðstefna um skóla án aðgreiningar

Rannsóknarstofa um skóla án aðgreiningar (RSÁA), í samvinnu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Kvikmyndaskóla Íslands, stendur fyrir þriðju ráðstefnunni af þremur um skólastefnuna skóli án aðgrein­ingar fimmtudaginn 31. mars kl. 13.30–16.15 í fyrirlestrarsalnum Skriðu í hús­næði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Rannsóknarstofa um skóla án aðgreiningar (RSÁA),stendur fyrir þriðju ráðstefnunni af þremur um skólastefnuna skóli án aðgrein­ingar. Ráðstefnan verður  fimmtudaginn 31. mars kl. 13.30–16.15 í fyrirlestrasalnum Skriðu í hús­næði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og er í samvinnu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Kvikmyndaskóla Íslands, 
 
Ráðstefnan ber heitir Hlustið á okkur - Hvað eflir og hvað hindrar þátttöku allra barna og unglinga í lýðræðislegu námssamfélagi skólanna?
 
Á ráðstefnunni verður fjallað um reynslu nemenda af námi við skóla sem leitast við að fylgja skólastefnunni skóli án aðgreiningar.
 
Ráðstefnustjórar eru Svandís Ingimundardóttir, skólamálafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Atli Lýðsson varaformaður Þroskahjálpar.
Dagskrá
 
13.30-13.40   Setning. Oddný Sturludóttir, formaður Menntaráðs Reykjavíkurborgar

13.40-14.05   Raddir barna af barnafundi - Kynning á rannsókn. Ragnheiður Axelsdóttir M.Ed. Sérkennari

14.05-14.10  Viðtal við grunnskólabörn - Myndbrot frá Kvikmyndaskóla Íslands.

14.10-14.30  Að virða börn. Um réttindi barna. Dr. Gunnar Finnbogason, prófessor við Menntavísindasvið

14.30- 15.00  Kaffi

15.00-15.20   Rödd unglinga – hvernig á skólinn að vera. Fyrstu niðurstöður úr spurningakönnun meðal unglinga í 20 grunnskólum. Dr. Amalía Björnsdóttir, dósent við Menntavísindasvið

15.20-15.40  Hrannar Halldórsson Bachmann 15 ára

15.40-15.35   Viðtal við unglinga í framhaldsskóla - Myndbrot frá Kvikmyndaskóla Íslands.

15.35-15.55   „Leikskólagangan af sjónarhóli barna“.  Dr. Jóhanna Einarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið

15.55-16.00   Viðtal við leikskólabörn - Myndbrot frá Kvikmyndaskóla Íslands.

16.00-16.15   Ráðstefnulok Dr. phil. Dóra S. Bjarnason, prófessor við Menntavísindasvið og forstöðumaður Rannsóknarstofu um skóla án aðgreiningar
 
Ráðstefnan er öllum opin og þátttakendum að kostnaðarlausu. (Kaffisjóður 500kr.)

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica