Heimsókn nema í félagsráðgjöf
Síðast liðinn föstudag heimsóttu um 40 nemar í félagsráðgjöf embætti umboðsmanns barna. Nemarnir eru á öðru og þriðja ári í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og var þessi heimsókn einn liður í námi þeirra en nemarnir kynna sér m.a. stofnanir og embætti á vegum hins opinbera. Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, tók á móti nemunum og kynnti embættið og helstu verkefni þess.
Umboðsmaður barna þakkar nemum í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands fyrir ánægjulega heimsókn.
Frá heimsókn nema í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands