Fundur um þátttöku barna í íþróttastarfi
Umboðsmaður barna, í samvinnu við Hagstofuna, Ungmennafélag Íslands og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands boðar til fundar um þátttöku barna í íþróttastarfi.
Embætti umboðsmanns barna efnir til fundar um þátttöku barna í íþróttastarfi í fundarsal Þjóðminjasafnsins, á alþjóðlegum mannréttindadegi barna, föstudaginn 20. nóvember milli kl. 12 og 13:15.
Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, ávarpar fundinn í upphafi. Að því loknu flytur Anton Örn Karlsson, deildarstjóri félagsmála hjá Hagstofu Íslands, erindið Tölur um þátttöku barna í íþróttastarfi. Í erindinu verður kynnt ný greining á þátttöku barna í íþróttastarfi þar sem meðal annars er tekið tillit til kyns, aldurs, búsetu og efnahagsstöðu. Slík greining hefur ekki áður verið gerð með þessum hætti.
Ungmenni úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna munu einnig fjalla um þátttöku barna í íþróttastarfi og gera grein fyrir sjónarmiðum barna, meðal annars út frá umræðum og niðurstöðum Barnaþings.
Í lok fundarins fara fram pallborðsumræður með þátttöku Kolbeins H. Stefánssonar, dósents við Háskóla Íslands, Ragnhildar Skúladóttur, sviðsstjóra fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Önnu Rakelar Gunnarsdóttur, ungrar íþróttakonu, og Óskars Þórs Ármannssonar, sérfræðings í mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Fundarstjóri verður Salvör Nordal, umboðsmaður barna.

Hér er hægt að nálgast Facebook viðburð fundarins.