Fundur með félags- og húsnæðismálaráðherra
Umboðsmaður barna átti í dag fund með Ragnari Þór Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, og starfsfólki ráðuneytisins.
Á fundinum var m.a. rætt um þjónustu við börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Umboðsmaður barna áréttaði mikilvægi þess að börnin hafi aðgang að leikskóla, frístundaheimilum og tómstundastarfi til jafns við önnur börn. Aðgangur að slíkri þjónustu hefur grundvallarþýðingu fyrir velferð og þroska barnanna og stuðlar að inngildingu þeirra í íslenskt samfélag.
Einnig var rætt um mikilvægi þess að lokið verði sem fyrst við gerð gæðaviðmiða fyrir barnaverndarþjónustu. Gæðaviðmiðin gegna veigamiklu hlutverki enda gera lög ráð fyrir að eftirlit Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála grundvallist að miklu leyti á þeim viðmiðum sem stofnunin setur. Þá var rætt um hvort eftirlitsheimildir stofnunarinnar samkvæmt lögum séu nægilega skýrar og víðtækar til að tryggja virkt og árangursríkt eftirlit með þjónustu við börn.
Umboðsmaður barna þakkar ráðherra og starfsfólki ráðuneytisins fyrir góðan og gagnlegan fund.