28. febrúar 2018

Fundur með dómstólasýslunni

Umboðsmaður barna fór á fund stjórnar dómstólasýslunnar þar sem rædd voru hagsmunamál barna við birtingu dóma.

Umboðsmaður barna fór á fund stjórnar dómstólasýslunnar þar sem rætt var hvernig gæta má betur að hagsmunum barna við meðferð mála fyrir dómstólum. Lögð var áhersla á mikilvægi þess að persónuvernd væri tryggð við birtingu dóma sem varða alvarleg brot gegn börnum.

Dómstólasýslan og umboðsmaður barna munu verða í góðu samstarfi varðandi þau atriði sem snúa að því að gæta að hagsmunum barna.

 

mynd af starfsfólki umboðsmanns barna og stjórn dómstólasýslunnar


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica