13. júlí 2026

Fundur ENYA á Írlandi

Börn frá tólf Evrópulöndum, þar á meðal Íslandi, taka þátt í ENYA-verkefninu árið 2026 sem fjallar um réttindi hinsegin barna. Fulltrúar umboðsmanns barna á fundi ENYA í ár voru Axel Bjarki og Loki Snær. Með þeim í för var Andrea Rói.

Markmið verkefnisins er að gefa börnum tækifæri til að ræða stöðu hinsegin barna og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Verkefnið byggir á 12. gr. Barnasáttmálans um rétt barna til að tjá skoðanir sínar og að tekið sé tillit til þeirra.

Þátttakendur í hverju landi hafa rætt reynslu sína og þær áskoranir sem hinsegin börn standa frammi fyrir þegar kemur að réttindum þeirra. Á grundvelli þeirrar vinnu mótaði hvert þátttökuland fimm tillögur sem endurspegla áherslur og áhyggjur barnanna.

Í júlí komu tveir fulltrúar frá hverju þátttökulandi og svæði saman á ENYA-fundi í Dublin á Írlandi. Þar ræddu börnin tillögurnar frá löndunum, greindu sameiginleg málefni, meðal annars varðandi menntun, inngildingu og félagslega þætti, og unnu saman að sameiginlegum tillögum.

Á fundinum fengu börnin einnig tækifæri til að kynnast jafnöldrum frá öðrum löndum og deila reynslu sinni og sjónarmiðum.

Tillögur barnanna verða hluti af stefnuyfirlýsingu Evrópusamtaka umboðsmanna barna, ENOC, um réttindi hinsegin barna. Fulltrúar barnanna munu einnig kynna tillögurnar á 30. ársfundi ENOC sem fram fer í Barcelona 30. september og 1. október 2026.

3-Irland

Irland-5



Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica