11. apríl 2019

Fréttatilkynning: Tíu ára afmæli ráðgjafarhóps - Frú Vigdís Finnbogadóttir verður verndari barnaþings

Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna fagnar tíu ára afmæli í dag. Frú Vigdís Finnbogadóttir ávarpar afmælisgesti en hún hefur samþykkt það hlutverk að vera verndari barnaþings.

TÍU ÁRA AFMÆLI RÁÐGJAFARHÓPS UMBOÐSMANNS BARNA

 FRÚ VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR VERNDARI BARNAÞINGS

(Fréttatilkynning)

Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna fagnar í dag, 11. apríl, tíu ára afmæli sínu. Af því tilefni er blásið til afmælisveislu í húsnæði umboðsmanns barna í Kringlunni 1, 5. hæð, milli kl. 16 og 18, og verður meðal annars afmæliskaka á boðstólum.

Frá því embættið var stofnað hefur umboðsmaður ætíð verið í virku samtali við börn en fyrir tíu árum var stofnaður sérstakur ráðgjafarhópur sem hittist reglulega hjá embættinu og er umboðsmanni til ráðgjafar um ýmis mál. Í hópnum eru börn á aldrinum 12- 17 ára. Við endurskoðun laga um embættið í lok síðasta árs var starf ráðgjafarhópsins lögfest og er ætlunin að efla starf hópsins enn frekar á næstu misserum.

Á afmælishátíðinni í dag verður núverandi og fyrrverandi meðlimum hópsins boðið til að fjalla um framtíðarsýn ráðgjafarhópsins. Einnig verður þar sérstaklega til umfjöllunar þing um málefni barna – barnaþing – sem haldið verður í nóvember á þessu ári og umboðsmaður barna skipuleggur í samvinnu við börn. Af því tilefni mun frú Vigdís Finnbogadóttir ávarpa afmælisgesti en hún hefur samþykkt að vera verndari fyrsta barnaþingsins. Það er sérstakur heiður að Vigdís skuli hafa tekið að sér þetta hlutverk því hún hefur ætíð hlúð sérstaklega að málefnum barna og barnamenningu en ekki síður verndun umhverfisins en í loftlagsbaráttunni hafa börn skipað sér í framvarðasveit. Gera má ráð fyrir að öll þessi málefni verða í brennidepli á barnaþinginu. 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica