Fósturkerfið og tillögur ENYA árið 2024
Árið 2024 tók embættið, ásamt ráðgjafarhópi umboðsmanns barna, þátt í verkefni ENYA (European Network of Young Advisors), og var þema verkefnisins það árið réttindi barna í fóstri (The Rights of Children in Alternative Care).
Að undanförnu hefur fósturkerfið verið til umræðu í samfélaginu og aukin áhersla lögð á að bæta stöðu og réttindi fósturbarna. Umboðsmaður barna hefur á síðustu árum fjallað reglulega um málefni fósturbarna og fósturkerfið. Árið 2024 tók embættið, ásamt ráðgjafarhópi umboðsmanns barna, þátt í verkefni ENYA (European Network of Young Advisors), og var þema verkefnisins það árið réttindi barna í fóstri (The Rights of Children in Alternative Care).
Í undirbúningi verkefnisins var settur á fót sérstakur sérfræðihópur barna um fósturmál sem umboðsmaður barna hélt utan um. Hópurinn vann tillögur að umbótum í málaflokknum sem voru kynntar á árlegri ráðstefnu European Network of Ombudspersons for Children (ENOC), sem haldin var í Helsinki í júlí 2024. Einn fulltrúi frá Íslandi tók þátt í ráðstefnunni, en tveir fulltrúar sóttu undirbúningsfund í Slóvakíu.
Á fundinum í Helsinki samþykktu fulltrúar ráðgjafarhópa barna frá 15 evrópskum ríkjum sameiginlegar tillögur ENYA um réttindi og stöðu fósturbarna. Tillögurnar voru í kjölfarið lagðar fyrir þing ENOC haustið 2024.
Helstu tillögur barnanna voru eftirfarandi
- Að efla eftirlit með fósturheimilum
- Að tryggja raunverulegar og aðgengilegar kvörtunarleiðir fyrir börn og greiðan aðgang upplýsingum
- Að tryggja að börn fái ávallt að tjá sig um eigið mál, óháð aldri, meðal annars með endurskoðun á 12 ára aldursviðmiði
- Að hverri fósturfjölskyldu fylgi sálfræðingur, með svipuðum hætti og heimilislæknir, sem meti reglulega líðan barnsins og fjölskyldunnar í heild nema barn óski annars
- Að skapa vettvang þar sem fósturbörn geta hist og átt samskipti, til dæmis í félagsmiðstöð
- Að tryggja stöðugleika í lífi barns og koma í veg fyrir óraunhæfar væntingar
- Að efla eftirlit og eftirfylgd með umgengni til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif eða þrýsting
- Að tryggja umgengni við kynforeldra þegar aðstæður leyfa, en jafnfram auðvelda barni að rjúfa samskipti ef það er því fyrir bestu
- Að auka vitund í samfélaginu um stöðu fósturbarna