29. september 2009

Forvarnardagurinn er á morgun

Forvarnardagur 2009 verður haldinn í öllum grunnskólum landsins á morgun, miðvikudaginn 30. september. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu.

  • Unglingar sem verja í það minnsta klukkustund á dag með fjölskyldum sínum, eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna
  • Ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf falla mun síður fyrir fíkniefnum
  • Því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau verði fíkniefnum að bráð

Þessi heillaráð byggja á niðurstöðum íslenskra vísindamanna sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og hafa vakið alþjóðlega eftirtekt.

Nánar á www.forvarnardagur.is.

Hafðu samband

Póstlisti

Þetta vefsvæði byggir á Eplica