3. júlí 2014

Fjölskyldustefnur á Norðurlöndunum og velferð barna - Ráðstefna

Ráðstefna um velferð barna og fjölskyldna verður haldin 5. september 2014, í Nauthóli, Reykjavík. Ráðstefnan er öllum opin og gjaldfrjáls.

Ráðstefna um velferð barna og fjölskyldna verður haldin 5. september 2014, í Nauthóli, Reykjavík. Yfirskriftin er „Fjölskyldustefnur á Norðurlöndunum og velferð barna".

Farið verður yfir þætti sem miða að því að auka velferð barna og barnafjölskyldna og helstu viðfangsefni í málefnum fjölskyldunnar sem stjórnvöld á Norðurlöndunum hafa staðið frammi fyrir og viðbrögð við þeim. Fjallað verður um forvarnir og aðkomu grunnþjónustu sveitarfélaga að velferð fjölskyldna. Gefinn verður gaumur að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem er 25 ára í nóvember. Að lokum er horft til framtíðar út frá tillögu til þingsályktunar um fjölskyldustefnu og aðgerðaáætlun með áherslu á börn á Íslandi, en vinna við mótun hennar hófst um mitt árið 2013 og er nú langt komin.

Ráðstefnan er hluti af viðburðaröð velferðarráðuneytisins á sviði félags- og heilbrigðismála vegna formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni árið 2014

Ráðstefnan er öllum opin og gjaldfrjáls. Sérstaklega er þó vænst þátttöku fagfólks í  málaflokknum, fræðimanna, stjórnenda og annarra sem starfa að stefnumótun í  velferðarþjónustu. 

Fyrirlestrar á ráðstefnunni eru haldnir á ensku.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica