19. ágúst 2011

Fjölskyldan SAMAN á Menningarnótt

SAMAN-hópurinn hvetur foreldra til að fylgja börnum sínum og unglingum í bæinn á Menningarnótt og njóta dagskrárinnar saman.

Nú líður að Menningarnótt í Reykjavík en hún verður haldin á morgun 20. ágúst nk. Yfirskrift Menningarnætur að þessu sinni er Gakktu í bæinn. Eftir því sem fram kemur frá stjórnendum Menningarnætur er dagskráin fjölbreytt og allir fjölskyldumeðlimir ættu að geta fundið eitthvað við hæfi.

SAMAN-hópurinn hvetur foreldra til að fylgja börnum sínum og unglingum í bæinn á Menningarnótt og njóta dagskrárinnar saman.

Útivistartíminn er í fullu gildi á Menningarnótt. Þótt sumartíminn geri ráð fyrir að börn 12 ára og  yngri séu ekki úti eftir kl. 22 og unglingar yngri en 16 ára ekki úti eftir kl. 24 þarf að taka mið af aðstæðum hverju sinni og foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum og unglingum. Alla jafna safnast mikill fjöldi fólks í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt. Því reynir á í samskiptum og samfélagi manna og aðstæður sem börn og unglingar ráða ekki við geta hæglega skapast. Því er mikilvægt að foreldrar hugi að því að börn og unglingar séu ekki eftirlitslaus í miðborginni. Síðasta ár var nokkur umfjöllun í fjölmiðlum um ölvun í kjölfar dagskrár menningarnætur og bágt ástand ölvaðra unglinga sem fluttir voru í Miðbæjarathvarf af lögreglu.

Samvera foreldra og unglinga er ein besta forvörnin.

SAMAN-hópurinn hvetur því foreldra til að elska börnin sín óhikað og setja þeim skýr mörk á Menningarnótt - sem og aðra daga

www.samanhopurinn.is  


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica