8. maí 2014

Fátæk börn á Íslandi - Morgunverðarfundur

Umboðsmaður barna vill vekja athygli á því að á síðasta Náum áttum fundi vetrarins, miðvikudaginn 14. maí n.k., verður fjallað um málefni barnafátæktar á Íslandi.

Umboðsmaður barna vill vekja athygli á því að á síðasta Náum áttum fundi vetrarins, miðvikudaginn 14. maí n.k., verður fjallað um málefni barnafátæktar á Íslandi.

Fyrirlesarar að þessu sinni verða þær Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheill (Save the Children Iceland) sem fjallar um barnafátækt, brot á mannréttindum barna, Elísabet Karlsdóttir, félagsráðgjafi, MA. verkefnastjóri RBF fjallar um aðstæður reykvískra barnafjölskyldna og erindi Vilborgar Oddsdóttur, félagsráðgjafa hjá Hjálparstofnun kirkjunnar, heitir "Hver er svo raunveruleikinn"?.   Fundarstjóri verður Steinunn Bergmann félagsráðgjafi.

Að venju verður morgunverðarfundurinn á Grand Hótel í Reykjavík og hefst kl. 08.00 og er opinn öllum sem áhuga hafa. Aðgangseyrir eru 2000 kr. með morgunverði.

Skráning og nánari upplýsingar á www.naumattum.is. Þar er einnig hægt að skoða efni fyrri funda.

Náum Áttum Maí 2014.

 

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica