27. apríl 2012

Fagráð eineltismála grunnskóla hefur starfsemi

Miklar væntingar eru bundnar við starfsemi fagráðs í eineltismálum í grunnskólum sem muni nýtast til að finna úrlausn á erfiðum eineltismálum í grunnskólum sem ekki hefur tekist að leysa í nærsamfélaginu.
Mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir staðfesti þann 10. mars 2012 verklagsreglur um starfsemi fagráðs eineltismála í samræmi við reglugerð nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur skólasamfélagsins í grunnskólum. Ráðherra hefur jafnframt skipað þriggja manna fagráð til eins árs.
 
Þeir aðilar sem skipa fagráðið eru Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir náms- og starfsráðgjafi, Páll Ólafsson félagsráðgjafi og Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur. Með fagráðinu starfar Árni Guðmundsson verkefnisstjóri verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum. Sjá nánar heimasíðu verkefnisins www.gegneinelti.is
Fagráðið hefur hafið störf og byrjaði starfsemi sína með því að funda með mennta- og menningarmálaráðherra í vikunni um þetta brýna málefni.
 
Í reglugerðinni um ábyrgð og skyldur skólasamfélagsins, 7. gr segir eftirfarandi: „Foreldrar eða skólar geta óskað eftir aðstoð sérstaks fagráðs sem starfar á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytis ef ekki tekst að finna viðunandi lausn innan skóla eða sveitarfélags, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og aðkomu sérfræðiþjónustu.“
 
Fagráðið hefur einkum tvíþætt hlutverk varðandi mál sem því berast. Í fyrsta lagi að leita að viðunandi niðurstöðu í málum með sáttum sé þess nokkur kostur og í öðru lagi að úrskurða á grundvelli þeirra gagna og upplýsinga er fagráðinu hefur borist í tilteknum málum. Ef fagráðið telur að ekki liggi fyrir nægilega greinargóðar upplýsingar skal ráðið leitast við að afla þeirra, annaðhvort með formlegum hætti eða með viðtölum við málsaðila. Úrskurðir fagráðsins eru ráðgefandi.

Miklar væntingar eru bundnar við starfsemi fagráðs í eineltismálum í grunnskólum sem muni nýtast til að finna úrlausn á erfiðum eineltismálum í grunnskólum sem ekki hefur tekist að leysa í nærsamfélaginu. Með samhentum kröftum allra aðila skólasamfélagsins, þ.e. starfsfólks skóla, nemenda foreldra auk sérfræðiþjónustu sveitarfélaga, annarra stuðningsaðgerða og nú tilkomu sérstaks fagráðs, ættu að skapast enn betri skilyrði til að útrýma einelti úr samfélaginu. Einelti er ofbeldi og á ekki að fá að þrífast í skólum eða annars staðar í samfélaginu.

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica