28. september 2026

Erindi um aukna réttarvernd barna sem verða fyrir kynferðisbrotum ítrekað

Umboðsmaður barna hefur ítrekað erindi sitt til dómsmálaráðherra um réttarvernd barna sem verða fyrir kynferðisbrotum.

Umboðsmaður barna sendi dómsmálaráðherra erindi, dags. 30. apríl sl., þar sem kallað var eftir því að lágmarksaldur samþykkis yrði skilgreindur sérstaklega í 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Umboðsmaður barna telur að núverandi regluverk tryggi ekki nægilega vernd barna í samræmi við Barnasáttmálann og leggur áherslu á að börn undir 15 ára aldri geti ekki veitt samþykki til kynmaka við fullorðinn einstakling. Jafnframt var þess óskað að XXII. kafli laganna yrði tekinn til heildstæðrar endurskoðunar með það að markmiði að auka réttarvernd barna.

Þess var óskað að ráðuneytið upplýsti umboðsmann barna um viðbrögð sín við erindinu fyrir 27. maí sl. Umboðsmaður barna ítrekaði erindið með tölvupósti þann 18. júní og 19. ágúst sl.

Þar sem svar hefur ekki borist hefur umboðsmaður barna ítrekað erindið og óskað eftir því að svar ráðuneytisins berist embættinu án frekari dráttar. 

Hægt er að lesa bréfið hér. 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica