27. maí 2019

Er bréf á leiðinni heim til þín?

Á næstu dögum eiga 250 börn um land allt von á bréfi frá umboðsmanni barna. Bréfið inniheldur boð á Barnaþing sem haldið verður í Hörpu í Reykjavík 21. og 22. nóvember nk. og verður hápunktur afmælisárs barnasáttmálans en í ár eru 30 ár liðin frá því hann var samþykktur af Sameinuðu þjóðunum.

FRÉTTATILKYNNING UM BARNAÞING

 

Er bréf á leiðinni heim til þín?

 

Á næstu dögum eiga 250 börn um land allt von á  bréfi frá umboðsmanni barna. Bréfið inniheldur boð á Barnaþing sem haldið verður í Hörpu í Reykjavík 21. og 22. nóvember nk. og verður hápunktur afmælisárs barnasáttmálans en í ár eru 30 ár liðin frá því hann var samþykktur af Sameinuðu þjóðunum. Börnin voru valin með slembivali úr þjóðskrá til að fá sem fjölbreyttastan hóp til þátttöku en markmið þingsins  er að efla lýðræðislega þátttöku barna og virkja þau í umræðu um málefni sem varða þau. Niðurstöður umræðunnar verða kynntar ríkisstjórn sem framlag í stefnumótun um málefni barna.

Þingið verður sett þann 21. nóvember með formlegri dagskrá en þann 22. nóvember verður dagskráin  tvískipt með annars vegar þjóðfundi með þátttöku barna og fullorðinna og hins vegar opinni dagskrá.

Ásamt börnunum verður Alþingismönnum, fulltrúum stofnana ríkis og sveitarfélaga, aðilum vinnumarkaðarins og frjálsum félagasamtökum boðið á þingið. Vigdís Finnbogadóttir er sérstakur verndari barnaþingsins en hún hefur unnið ötullega að málefnum barna og barnamenningu.

 

Nánari upplýsingar veitir umboðsmaður barna Salvör Nordal í síma 552 8999, eða 693 5119.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica