Ráðgjafar umboðsmannsins í fjölbreyttu hlutverki á barnaþingi
Störfin í ráðgjafarhópnum eru jafn mismunandi og þau eru mörg. Það sem tengir þau fyrst og fremst saman er áherslan á réttindi barna og barnasáttmálann. Ráðgjafarhópurinn hittist mánaðarlega á fundum og fylgist vel með starfsemi embættisins. Fyrir barnaþingið fundaði ráðgjafarhópurinn reglulega og skipti sér niður á hin ýmsu verkefni fyrir þingið. Þá tóku ráðgjafar virkan þátt í samráðshópi barnaþings, þar sem saman komu aðilar frá ýmsum félagasamtökum og stofnunum.
Fréttafólkið úr ráðgjafarhópnum tók myndir, viðtöl við þátttakendur og hélt umræðunni gangandi á samfélagsmiðlum umboðsmanns barna og UngRúv. Hátíðarstjórarnir leiddu dagskrána fyrri daginn og kynntu ráðherrana, Forseta Íslands og Steinda Jr. á svið. Varpað var upp barnamyndum af gestum á sviðinu og fengu ráðgjafarnir tækifæri til þess að spyrja þá nánar út í þeirra upplifun af bernskunni. Fyrri ráðgjafar umboðsmannsins tóku einnig virkan þátt á þinginu og voru skipulagsteymi innan handar við þau fjölbreyttu verkefni sem þurfti að sinna.
Næst á dagskrá hjá ráðgjafarhópnum er kærkomið jólafrí en gera má ráð fyrir því að hópurinn komi ötullega aftur til starfa í janúar.
Nánari umfjöllun á Rúv um fréttamennina okkar má nálgast hér.