8. nóvember 2016

Dagur gegn einelti

Vakin er athygli á því að dagurinn í dag - 8. nóvember - er helgaður baráttunni gegn einelti í samfélaginu og er dagurinn nú haldinn í sjötta sinn í ár. Góð samskipti skipta lykilmáli við að skapa jákvætt samfélag og er við hæfi á þessum degi að hugleiða hvernig við sjálf getum stuðlað að góðu og heilbrigðu samfélagi fyrir alla án eineltis.

Þess má geta að árið 2011 undirrituðu fulltrúar stjórnvalda, sveitarfélaga, félagasamtaka og opinberra stofnana þjóðarsáttmála gegn einelti og lýstu þar með vilja sínum til að leggja þessu málefni lið. Það er því vert að hvetja alla til að undirrita þann þjóðarsáttmála en undirritun er skuldbinding um að leggja þessu mikilvæga málefni lið og stuðla að jákvæðum samskiptum.

Hér á vefsíðu fagráðs eineltismála í grunnskólum er hægt að skrifa undir sáttmálann.  

Allt of mörgum líður illa vegna eineltis og staðreyndin er sú að einelti getur eyðilagt líf og tekið líf. Einelti er þjóðfélagsmein og það er samfélagsskylda okkar að stuðla að því að uppræta það. Einelti þrífst alls staðar þar sem það er látið afskiptalaust. Ef við verðum vör við einelti, leggjum þá okkar framlag á vogarskálarnar, grípum inn í og gerum okkar besta til að beina málinu í réttan farveg. Eitt mikilvægasta vopnið í baráttunni gegn einelti er að samþykkja ekki þöggun.

Fjölmörg félagasamtök leggja baráttunni gegn einelti lið með sínu góðu verkefnum þar á meðal er Barnaheill með vináttuverkefnið, Samtökin Erindi o.fl. 

Myndband frá Friends.se 

Hafðu samband

Póstlisti

Þetta vefsvæði byggir á Eplica