18. maí 2012

Dagur barnsins er á sunnudaginn

Á degi barnsins er tilvalið fyrir uppalendur að leggja aðrar skyldur til hliðar ef mögulegt er og njóta samveru með börnunum.

Í október 2007 samþykkti ríkisstjórnin að síðasti sunnudagur í maí ár hvert væri helgaður börnum hér á landi. Beri daginn upp á hvítasunnudag skal dagur barnsins þó vera sunnudagurinn á undan hvítasunnudegi. Fyrsti dagur barnsins var 25. maí 2008 og í ár er hann haldinn hinn 20. maí.

Engin formleg dagskrá er í boði á vegum sveitarfélaga eða annarra stjórnvalda en þess í stað hvetur umboðsmaður barna foreldra og aðra sem hafa börn í umsjá sinni til að tileinka þennan dag sérstaklega börnunum.

Á degi barnsins er tilvalið fyrir uppalendur að leggja aðrar skyldur til hliðar ef mögulegt er og njóta samveru með börnunum. Samvera á ekki að þurfa að kosta pening. Börnin hafa oft einfaldar og góðar hugmyndir af því hvað þeim finnst skemmtilegast að gera með fjölskyldunni. Er því mikilvægt að hlusta á skoðanir þeirra og gefa þeim tækifæri til að hafa áhrif á það hvað fjölskyldan gerir saman. Besta minning barns er ekki endilega dagurinn þegar farið var í kvikmyndahús, ísbúð og endað á veitingahúsi. Besta minningin getur verið tengd því þegar öll fjölskyldan spilaði saman, fór saman í gönguferð í náttúrunni með teppi og nesti eða þegar hún bakaði saman.

Aðstæður barna í samfélaginu eru mismunandi sem og fjölskylduaðstæður en börn eiga alltaf að geta notið þess að vera börn og eiga góða stundir með þeim sem standa þeim næst. Dagur barnsins snýst fyrst og fremst um að setja börnin í heiðurssæti og eiga með þeim góða samveru.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica