Dagur barnsins
Dagur barnsins í ár verður sunnudaginn 24. maí og hvetjum við börn og fjölskyldur þeirra að njóta góðra og jákvæðra samveru með þeim hætti sem hentar hverjum og einum.
Þann 2. október 2007 samþykkti ríkisstjórnin tillögu félagsmálaráðherra um að sérstakur dagur verði helgaður börnum hér á landi. Í tillögunni er lagt til að síðasti sunnudagur í maí ár hvert verði „dagur barnsins að því undanskildu að beri daginn upp á hvítasunnudag skal hann vera næsti sunnudagur á undan hvítasunnudegi. Þessi tími var meðal annars talinn æskilegur þar sem framundan eru skólalok og upphaf sumarfría.
Fyrsti dagur barnsins var 25. maí 2008 og var þeim degi vel tekið. Börn og foreldrar gerðu sér glaðan dag og víða um land skipulögðu sveitarfélög ýmis konar dagskrá og viðburði til að gera daginn sem ánægjulegastan. Eitt helsta markmið dagsins er að gera börnum hátt undir höfði og hvetja til jákvæðrar og ánægjulegrar samverustunda barna, foreldra og annarra sem vilja gleðjast með börnunum í tilefni dagsins.
Á degi barnsins ættum við að prófa að leggja allar skyldur okkar til hliðar ef við mögulega getum og láta börnin njóta þess að eiga samveru með þeim sem standa þeim næst. Það þarf ekki að kosta neitt að eiga ánægjulega stund með barninu sínu heldur er megin tilgangur dagsins að setja barnið í öndvegi.