1. ágúst 2008

Busavígslur í framhaldsskólum

Yfirleitt fara busavígslur í framhaldsskólum vel fram en í undantekningartilfellum virðast þessar innvígsluathafnir fara úr böndunum. Umboðsmaður barna hefur sent skólastjórnendum og formönnum nemendafélaga framhaldsskólanna bréf þar sem þeir eru hvattir til þess að sjá til þess að komið sé fram við nýnema af virðingu á mannsæmandi hátt og tryggt sé að öryggis þeirra sé gætt í hvívetna við busavígslur.

Á hverju hausti berast umboðsmanni barna athugasemdir um framkvæmd busavígslna í framhaldsskólum landsins. Oftast fara busavígslurnar vel fram en í undantekningartilfellum virðast þessar innvígsluathafnir fara úr böndunum og hafa embættinu borist nokkrar ábendingar um vanvirðandi meðferð nýnema við busavígslur þar sem þeir eru niðurlægðir á ýmsan hátt og jafnvel beittir líkamlegu og/eða andlegu ofbeldi.

Umboðsmaður barna hefur sent skólastjórnendum og formönnum nemendafélaga framhaldsskólanna bréf þar sem þeir eru hvattir til þess að sjá til þess að komið sé fram við nýnema af virðingu á mannsæmandi hátt og tryggt sé  að öryggis þeirra sé gætt í hvívetna við busavígslur. Í skilningi laga eru nemar börn þar til þeir ná átján ára aldri og eiga því rétt á þeirri vernd sem velferð þeirra krefst. Margir eru óöruggir við upphaf skólagöngu í nýjum skóla og því er ekki úr vegi að nota busadaginn til þess að bjóða nýja nemendur velkomna á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.

 Bref Um Busavigslur 280708

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica