10. september 2009

Breytingar á ung- og smábarnavernd

Landlæknisembættið hefur ákveðið að taka upp breytt fyrirkomulag á skoðunum í ung- og smábarnavernd. Í stað skoðana við 3½ og 5 ára aldur verða þær gerðar við 2½ og 4 ára aldur barnsins.

Landlæknisembættið hefur ákveðið að taka upp breytt fyrirkomulag á skoðunum í ung- og smábarnavernd. Í stað skoðana við 3½ og 5 ára aldur verða þær gerðar við 2½ og 4 ára aldur barnsins. Þetta segir í frétt sem birt var á vefsvæði embættisins 9. sept. sl. Þar segir einnig að Landlæknisembættið hefur gefið út handbókina Ung- og smábarnavernd - Leiðbeiningar um heilsuvernd barna 0-5 ára. Handbókin er ætluð fagfólki en er einnig mjög gagnleg fyrir foreldra ungra barna. Eingöngu er um rafræna útgáfu að ræða og er hún á vefsetri Landlæknisembættisins.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica