Breytingar á skrifstofu embættisins
Sólveig Auður Bergmann hefur hafið störf hjá embætti umboðsmanns barna
Breytingar hafa orðið á starfsliði embættisins en Sólveig Auður Bergmann hóf störf hjá embættinu um miðjan febrúar. Hún er með BA og MA próf í lögfræði frá Háskóla Íslands og viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla. Áður starfaði hún sem lögfræðingur hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála og úrskurðarnefnd velferðarmála. Við hjá embættinu óskum Sólveigu velkomna til starfa.
Þá hefur Hafdís Una Guðnýjardóttir hætt störfum sem lögfræðingur hjá embættinu og tekið við starfi lögfræðings á skrifstofu rektors Háskóla Íslands. Hafdís Una var afkastamikil í starfi hjá umboðsmanni barna og meðal verkefna hennar hjá embættinu var yfirgripsmikil skýrsla um barnvæna réttarvörslu sem gefin var út í mars 2025. Við þökkum Hafdísi Unu kærlega fyrir frábær störf í þágu embættisins og óskum henni velfarnaðar í framtíðinni.

Sólveig Auður Bergmann