Bréf vegna greiðsluþátttöku í gleraugnakostnaði barna
Umboðsmaður barna hefur sent félags- og húsnæðismálaráðuneytinu bréf varðandi greiðsluþátttöku ríkisins í gleraugnakostnaði barna.
Umboðsmanni barna barst ábending um fyrirkomulag greiðsluþátttöku ríkisins í gleraugnakostnaði barna. Þar var meðal annars var bent á að gler geti orðið rispuð eða skemmst áður en réttur til greiðsluþátttöku stofnast að nýju, þó sjónlag barns hafi ekki breyst.
Um greiðsluþátttöku vegna sjónglerja eða snertilinsa fer samkvæmt reglugerð nr. 630/2021. Samkvæmt reglugerðinni eiga börn á aldrinum 0 til 6 ára almennt rétt á greiðsluþátttöku tvisvar á ári og börn á aldrinum 7 til 12 ára árlega.
Í bréfinu er óskað eftir upplýsingum um hvernig farið sé með beiðnir um greiðsluþátttöku við slíkar aðstæður og hvaða viðmið gildi um tíðari úthlutun þegar sjónlag breytist umtalsvert. Jafnframt var óskað eftir upplýsingum um greiðsluþátttöku vegna umgjarða og sérstakra íþróttagleraugna sem sum börn þurfa til viðbótar við hefðbundin gleraugu.
Óskað er eftir svari frá ráðuneytinu fyrir 16. desember 2026.
Hægt er að lesa bréfið hér .