Bréf vegna gjaldtöku endurtökuprófa og sjúkraprófa í framhaldsskólum
Umboðsmaður barna hefur sent bréf til mennta- og barnamálaráðuneytisins varðandi gjaldtöku endurtökuprófa og sjúkraprófa í framhaldsskólum.
Umboðsmanni barna barst ábending um gjaldtöku vegna endurtökuprófa og sjúkraprófa í framhaldsskólum. Umtalsverður munur virðist vera á fjárhæðum gjaldanna milli skóla sem og fyrir því hvaða tegund prófa gjald er innheimt, þar sem sumir skólar taka gjald vegna sjúkraprófa en aðrir eingöngu vegna endurtökuprófa. Að mati umboðsmanns barna eru endurtökupróf og sjúkrapróf eðlilegur þáttur námsmats í framhaldsskólum og telur að með því að leggja sérstök gjöld á slíkt námsmat kunni að skapast hætta á ójafnræði milli nemenda, einkum eftir efnahag og félagslegum aðstæðum. Að mati umboðsmanns þarf sérstaka og skýra heimild til gjaldtöku vegna slíkra prófa.
Umboðsmaður barna hefur sent mennta- og barnamálaráðuneytinu bréf í þeim tilgangi að afla afstöðu ráðuneytisins til þess hvort gjaldtaka vegna endurtökuprófa og sjúkraprófa samræmist lögum.
Umboðsmaður barna óskar eftir svari frá ráðuneytinu eigi síðar en 25. júní nk.
Hægt er að lesa bréfið hér.