Bréf vegna aðgangs barna að mótefnagjöf gegn RS-veiru
Umboðsmaður barna hefur sent heilbrigðisráðherra bréf varðandi aðgang barna fæddra í apríl 2026 að mótefnagjöf gegn RS-veiru.
Umboðsmanni barna barst ábending um að börnum fæddum í apríl 2026 sé almennt ekki boðin mótefnagjöf gegn RS-veiru fyrir veturinn 2026–2027. Samkvæmt upplýsingum sóttvarnalæknis er miðað við börn fædd frá 1. maí 2026, en sérstök viðmið gilda um börn í áhættuhópum.
Umboðsmaður barna hefur sent heilbrigðisráðherra bréf í þeim tilgangi að afla upplýsinga um forsendur viðmiðanna og hvernig þörf barna fæddra í apríl fyrir mótefnagjöf hafi verið metin. Jafnframt er óskað upplýsinga um hvort hægt sé að meta sérstaklega þörf barns sem fellur utan almennra viðmiða og hvert foreldrar geti þá leitað.
Óskað er eftir svari innan viku í ljósi þess að RS-tímabilið er hafið. Samrit bréfsins er sent sóttvarnalækni.
Hægt er að lesa bréfið hér.