12. mars 2026

Bréf til Reykjavíkurborgar vegna kaffistofu Samhjálpar

Umboðsmaður barna hefur sent bréf til Reykjavíkurborgar vegna fyrirhugaðrar kaffistofu Samhjálpar og mikilvægi þess að lagt sé sérstakt mat á áhrif á börn þegar teknar eru ákvarðanir á vettvangi borgarinnar.

Að undanförnu hefur umboðsmanni barna borist erindi frá foreldrum sem hafa áhyggjur af staðsetningu kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46 vegna návígi kaffistofunnar við grunnskóla og íþrótta- og tómstundarstarf barna. 

Vegna erindanna hefur umboðsmaður barna sent Reykjavíkurborg bréf í þeim tilgangi að vekja athygli borgaryfirvalda á þeirri skyldu að leggja ávallt mat á áhrif ákvarðana á börn í þeim tilgangi að tryggja réttindi og hagsmuni þeirra. Slíkt mat er liður í því að kanna hvort ákvarðanir samræmist 3. gr. Barnasáttmálans. 

Hægt er að lesa bréfið hér.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica