Bréf vegna gæðaviðmiða
Umboðsmaður barna hefur sent bréf til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins varðandi gæðaviðmið fyrir vistun barns utan heimilis eða í fóstri á vegum barnaverndarþjónustna
Starfsemi GEV var lögfest með lögum nr. 88/2021 og kemur þar fram að stofnuninni er m.a. ætlað það meginhlutverk að þróa gæðaviðmið á grundvelli bestu mögulegu þekkingar á málaflokkum á verkefnasviði stofnunarinnar.
Gæðaviðmiðum er ætla að gegna veigamiklu hlutverki og gera lögin ráð fyrir því að eftirlitshlutverk stofnunarinnar grundvallist að miklu leyti á þeim viðmiðum sem stofnunin setur. Að mati umboðsmanns barna er brýnt að þróun gæðaviðmiða fyrir barnaverndarstarf verði sett í algjöran forgang.
Umboðsmaður barna óskar eftir svari frá ráðuneytinu eigi síðar en 28. febrúar nk.
Hægt er að lesa bréfið hér.
Svar barst við bréfi umboðsmanns barna frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu þann 04.03 2026. Hægt er að lesa bréfið frá ráðuneytinu hér:
Svarbréf frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu
Umboðsmaður barna sendi svar við bréfi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins þann 17.03.2026. Hægt er að lesa bréfið hér: