Bréf til byggingarfulltrúa Reykjavíkur vegna vottorðs um öryggisúttekt
Umboðsmaður barna hefur óskað eftir frekari upplýsingum frá byggingarfulltrúa Reykjavíkur um öryggi húsnæðis Stuðla að Fossaleyni 17 og á hvaða grundvelli áframhaldandi notkun þess hefur verið heimiluð.
Umboðsmaður barna sendi byggingarfulltrúa Reykjavíkur bréf þann 24. apríl 2026 þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvort gefið hefði verið út vottorð um öryggisúttekt vegna viðbyggingar á Stuðlum og hvort gripið hefði verið til aðgerða vegna notkunar húsnæðisins. Í svari byggingarfulltrúa, dags. 4. maí 2026, kom fram að vottorð um öryggisúttekt hefði ekki verið gefið út vegna athugasemda við brunahólfandi hurðir. Byggingarfulltrúi tilkynnti eiganda húsnæðisins að notkun þess væri óheimil í óbreyttu ástandi. Í kjölfarið var þó verið ákveðið að heimila notkun þess tímabundið með bráðabirgðaráðstöfunum, meðal annars aukinni mönnun.
Á Stuðlum dvelja börn sem hafa verið frelsissvipt til að tryggja öryggi þeirra og því telur umboðsmaður sérstaklega mikilvægt að fyllsta öryggis sé gætt. Umboðsmaður hefur því óskað upplýsinga um lagagrundvöll ákvörðunarinnar, mat á brunavörnum og öðrum öryggisþáttum, þær bráðabirgðaráðstafanir sem gripið hefur verið til og eftirlit með þeim. Einnig er óskað upplýsinga um hvort leitað hafi verið álits slökkviliðs, brunahönnuðar eða annarra sérfræðinga. Þá hefur umboðsmaður óskað eftir upplýsingum um núverandi stöðu úrbóta og hvenær áætlað sé að unnt verði að gefa út vottorð um öryggisúttekt fyrir húsnæðið.
Hægt er að lesa bréfið hér.