Bið barna eftir þjónustu sveitarfélaga
Umboðsmaður barna hefur óskað eftir upplýsingum frá tuttugu fjölmennustu sveitarfélögum landsins um bið barna eftir frumgreiningu og samþykktri þjónustu.
Markmiðið er að varpa betur ljósi á heildarbiðtíma barna eftir greiningu og þjónustu. Upplýsingarnar verða birtar í september samhliða næstu birtingu umboðsmanns barna á upplýsingum um bið barna eftir þjónustu. Hér er hægt að lesa bréfið.