24. maí 2023

Barnaþing haldið í þriðja sinn

Það eiga 350 börn um land allt von á bréfi frá umboðsmanni barna. Bréfið inniheldur boð á barnaþing sem haldið verður í Hörpu í Reykjavík dagana 16. - 17. nóvember nk. 

Þetta er í þriðja sinn sem barnaþing er haldið en það var fyrst gert árið 2019. Reynslan af fyrri þingum er mjög góð og upplifun barnanna sem þá tóku þátt var afar jákvæð.

Börnin sem fá boð á þingið voru valin með slembivali úr Þjóðskrá til að fá sem fjölbreyttastan hóp til þátttöku en markmið barnaþings er að efla lýðræðislega þátttöku barna og virkja þau í umræðu um málefni sem varða þau. Niðurstöður umræðunnar verða kynntar ríkisstjórn sem framlag þingsins til stefnumótunar í málefnum barna.

Þingið verður sett þann 16. nóvember með formlegri dagskrá en þann 17. nóvember verður umræða meðal barnanna í þjóðfundarstíl og munu fullorðnir einnig koma að umræðunni.

Ásamt barnaþingmönnum verður alþingismönnum, fulltrúum stofnana ríkis og sveitarfélaga, aðilum vinnumarkaðarins og frjálsum félagasamtökum boðið á þingið.

Kveðið er á um rétt barna til þess að hafa áhrif í 1. mgr. 12. gr. Barnasáttmálans, en þar kemur fram að tryggja skuli barni sem myndað getur eigin skoðanir rétt til að láta þær frjálslega í ljós í öllum málum sem það varðar, og að tekið skuli tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska. Embætti umboðsmanns barna hefur á síðustu misserum lagt ríka áherslu á að við mótun stefnu og töku ákvarðana sem varða börn sé ávallt leitað eftir og tekið tillit til sjónarmiða þeirra, enda búa börn yfir einstakri reynslu og þekkingu sem og innsýn í málefni og reynsluheim barna.

Barnaþingið er mikilvægur þáttur í samráði við börn á aldrinum 11 – 15 ára sem alla jafna hafa fá tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri við stjórnvöld. Vigdís Finnbogadóttir er sérstakur verndari barnaþingsins en hún hefur unnið ötullega að málefnum barna og barnamenningu.

Barnaþingið, sem nú er haldið í þriðja sinn, er að festa sig í sessi sem mikilvægasti lýðræðisvettvangur barna í landinu. Við erum mjög spennt að sjá viðtökurnar við bréfunum sem eru nýfarin í póst og væntum þess að sjá fjölbreyttan og öflugan hóp barna á barnaþinginu í haust

segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna.

Kynningarmyndband fyrir barnaþing 2023

https://youtu.be/31qOZNE9RSo


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica