28. janúar 2014

Barnamenningarhátíð

Barnamenningarhátíð verður haldin í Reykjavík dagana 29. apríl til 4. maí 2014. Þar verður að finna fjölda viðburða sem börn og fullorðnir, í fylgd með börnum, geta sótt sér að kostnaðarlausu út um alla borg. Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku í hátíðinni og framkvæmdafé vegna viðburðar.

barnamenningarhatid_fuglBarnamenningarhátíð verður haldin í Reykjavík dagana 29. apríl til 4. maí 2014. Þar verður að finna fjölda viðburða sem börn og fullorðnir, í fylgd með börnum, geta sótt sér að kostnaðarlausu út um alla borg.

Dagskrá Barnamenningarhátíðar inniheldur viðburði frá menningar- og listastofnunum, listhópum, listamönnum, félagasamtökum, listaskólum, grunnskólum, leikskólum og frístundaheimilum.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku í hátíðinni og framkvæmdafé vegna viðburðar.

Nánar á www.barnamenningarhatid.is

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica