5. janúar 2007

Bæklingur um forsjá

Umboðsmaður barna vill vekja athygli á nýjum bæklingi um forsjá sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur gefið út.

Umboðsmaður barna vill vekja athygli á nýjum bæklingi um forsjá sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur gefið út. 

Í bæklingnum er skýrt hvað felst í hugtakinu forsjá, hverjir fara með forsjá barns, hvenær forsjá er sameiginleg og hvað felst í sameiginlegri forsjá.

Tilgangurinn með útgáfu bæklingsins er að miðla almennum upplýsingum um þennan mikilvæga málaflokk til foreldra og almennings, svo að allir verði sem best upplýstir um eigin stöðu og rétt barna.

Upplýsingabæklingurinn mun liggja frammi í ráðuneytinu og hjá öllum sýslumannsembættum.  Einnig er hægt að lesa hann á vef dómsmálaráðuneytisins


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica