3. september 2012

Ársskýrsla fyrir árið 2011 er komin út

Starfsárið 2011 var erilsamt og viðburðarríkt. Fyrir utan hefðbundin verkefni embættisins fór töluverður tími í að efla og styðja við þátttöku barna í samfélaginu. Eitt af stærri verkefnum umboðsmanns barna ársins 2010 var ritun skýrslu til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna.

Ársskýrsla fyrir árið 2011 er komin út.

Starfsárið 2011 var erilsamt og viðburðarríkt. Fyrir utan hefðbundin verkefni embættisins fór töluverður tími í að efla og styðja við þátttöku barna í samfélaginu og þar bar hæst samstarfsverkefni umboðsmanns barna, UNICEF á Íslandi og Reykjavíkurborgar um „Stjórnlög unga fólksins“. Þá kannaði embættið hvernig leik- og grunnskólar standa að starfi með börnum í anda lýðræðis og þátttöku. Einnig hafði pólitísk og efnahagsleg umræða í samfélaginu bein og óbein áhrif á störf umboðsmanns enda var skorið niður í þjónustu við börn á ýmsum sviðum og skólar og deildir sameinaðar í andstöðu við vilja foreldra. Þegar þessar erfiðu ákvarðanir voru teknar virtist lítið hlustað á raddir barna og bein áhrif þessara ákvarðana á daglegt líf barna virtust stundum lítt könnuð. Einnig má nefna að nokkur ný mál varðandi heilsuvernd barna voru tekin fyrir hjá embættinu á árinu.

Eitt af stærri verkefnum umboðsmanns barna ársins 2010 var ritun skýrslu til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Árið 2011 var skýrsla íslenska ríkisins tekin fyrir hjá nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins en í fyrirtökunni byggði Barnaréttarnefndin töluvert á skýrslu umboðsmanns barna. Í kjölfarið fékk íslenska ríkið ábendingar um hvað mætti betur fara hér á landi. Embættið mun vinna með niðurstöður nefndarinnar næstu árin með beinum og óbeinum hætti.

Ársskýrslan er með hefðbundnu sniði. Fyrsti hlutinn er um starfsemi embættisins. Síðan er fjallað um ólík málefni sem embættið vann að á árinu 2011.

Opna skýrslu umboðsmanns barna um árið 2011


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica