Ársskýrsla 2025
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, afhenti Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir árið 2025 þann 1. september sl.
Embætti umboðsmanns barna fagnaði 30 ára afmæli árið 2025. Á þeim þremur áratugum sem liðnir eru frá stofnun þess hefur margt áunnist í málefnum barna, en þrátt fyrir mikilvægar framfarir standa enn eftir stór og brýn verkefni. Langvarandi bið barna eftir nauðsynlegri þjónustu er eitt þeirra, en fjölmörg börn bíða mánuðum og jafnvel árum saman eftir þeirri aðstoð sem þau þurfa og eiga rétt á. Frá árinu 2022 hefur umboðsmaður barna birt tvisvar á ári upplýsingar um fjölda barna sem bíða eftir þjónustu hjá opinberum aðilum og er gerð grein fyrir þeirri vinnu í ársskýrslunni.
Meðal helstu verkefna ársins 2025 var útgáfa skýrslu um barnvæna réttarvörslu. Þar var í fyrsta sinn lagt heildstætt mat á hvernig íslenskt réttarkerfi og stjórnsýsla samræmast réttindum barna samkvæmt Barnasáttmálanum og öðrum alþjóðlegum skuldbindingum. Þar er jafnframt að finna frásagnir barna af eigin reynslu af réttarkerfinu og sýna niðurstöðurnar að víða er enn þörf á úrbótum.
Fjórða barnaþing umboðsmanns barna var einnig haldið á árinu og tóku um 150 börn víðs vegar að af landinu þátt. Þar ræddu börnin þau málefni sem helst brenna á þeim og settu fram tillögur um breytingar sem þau vilja sjá í íslensku samfélagi. Í ársskýrslunni má lesa nánar um þessi og önnur verkefni embættisins á árinu 2025.
Ársskýrslan er gefin út rafrænt og er hægt að nálgast hér.