Erindi til umboðsmanns Alþingis
Þann 18. mars sl. kom út skýrsla Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) um brunann á Stuðlum í október 2024, þar sem 17 ára drengur lést.
Í skýrslunni kemur fram að viðbyggingin þar sem bruninn varð hafi verið í notkun frá árinu 2004 án þess að lögbundið vottorð um öryggisúttekt hafi verið gefið út. Viðbyggingin var aftur tekin í notkun í apríl 2025 án þess að vottorð um öryggisúttekt hafi verið gefið út.
Umboðsmaður barna telur það mjög alvarlegt, sérstaklega í ljósi þess að um er að ræða húsnæði þar sem vistuð eru börn sem ríkið hefur frelsissvipt í þeim tilgangi að tryggja öryggi þeirra.