Fréttir


Eldri fréttir: september 2014 (Síða 2)

Fyrirsagnalisti

8. september 2014 : Börn foreldra á leigumarkaði

Umboðsmaður barna telur brýnt að bæta húsnæðismálin hér á landi, meðal annars með því að styrkja stöðu foreldra á leigumarkaði. Yfirvöldum ber að setja hagsmuni barna í forgang og sjá til þess öll börn og fjölskyldur þeirra hafi tök á því að búa við aðstæður þar sem öryggi, stöðugleiki og velferð þeirra eru tryggð.

5. september 2014 : Ábyrgð heilbrigðisstarfsfólks - Yfirlýsing umboðsmanna barna á Norðurlöndum

Börn sem búa við ofbeldi og vanrækslu verða að geta treyst því að skólahjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólks sem annast börn hafi getu til að sjá vandamálið og bregðast við því. Stjórnvöld eiga að sjá til þess að tilkynningarskylda til barnaverndar sé virt í framkvæmd.

4. september 2014 : Mat á vellíðan og námi í leikskóla - málþing

Umboðsmaður barna vill vekja athygli á málþingi RannUng sem haldið verður 25. september nk. en þar verður fjallað um mat á vellíðan og námi barna í leikskóla.

3. september 2014 : Tengslafundur fyrir félagasamtök

Öllum samtökum sem vinna að hagsmunamálum barna er boðið að senda fulltrúa á tengslafund miðvikudaginn 17. september nk. kl. 14:00-16:00. Fundurinn verður haldinn á 5. hæð í Kringlunni 1, 103 Reykjavík.

2. september 2014 : Kynningar

Hægt er að panta kynningu með því að senda tölvupóst á netfangið ub@barn.is eða hringja í síma 552-8999. Vikurnar 6. – 10. og 13. – 17. október 2014 mun umboðsmaður leggja áherslu á að sinna aðilum sem staðsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins.
Síða 2 af 2

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica