8. júlí 2009

Hönd þín skal leiða en ekki meiða!

Herferð Evrópuráðsins  - börn og ofbeldi.

Í júní 2008 hófst á vegum Evrópuráðsins átak gegn ofbeldi á börnum. Í fréttatilkynningu Evrópuráðsins segir að markmiðið sé að koma í veg fyrir ofbeldi gegn börnum, að stuðla að jákvæðu uppeldi barna og að vekja athygli á réttindum barna um alla Evrópu.

Í mörgum Evrópuríkjum er ofbeldi gegn börnum umborið og það réttlæt í því skyni að það sé hluti af uppeldi barna. Ofbeldi er oft falið, t.d. innan heimila, skóla og stofnana sem veita eiga börnum vernd. Er jafnvel litið á það sem einkamál foreldra hvort þeir beita börnum ofbeldi í svokölluðu uppeldisskyni.

Ofbeldi gegn börnum er brot á mannréttindum barna. Þrátt fyrir alþjóðlega samninga og lög sem hafa að markmiði að vernda börn er ofbeldi gegn börnum enn algengt. Ofbeldi gegn börnum á sér stað í öllum Evrópuríkjum án tillits til landsvæða eða þjóðfélagshópa. Ofbeldi gegn börnum hefur áhrif á velferð barna s.s. möguleika þeirra til að tileinka sér nám, til félagslegrar aðlögunar í samfélaginu og getur haft varanleg áhrif á líf þeirra sem fullorðnir einstaklingar.

Átak Evrópuráðsins gengur undir slagorðinu Your hands should nurture not punish. Raise your hand against smacking! Má yfirfæra það á íslensku sem „Hönd þín skal leiða en ekki meiða.“ Hægt er að horfa á kynningarmyndband átaksins hér.
 
Að lemja fullorðinn er líkamsárás
Að lemja dýr er grimmilegt athæfi
Að lemja börn „er sjálfum þeim fyrir bestu“

Hönd þín skal leiða en ekki meiða!

Hafðu samband

Póstlisti

Þetta vefsvæði byggir á Eplica