Börn til áhrifa í sveitarfélaginu
Stjórnvöld, þ.á.m. sveitarfélög, eiga að hlusta á skoðanir barna og virða þær eins og fram kemur í Barnasáttmálanum. Sveitarfélög eru skuldbundin til þess að tryggja börnum og unglingum lýðræðislega þátttöku á þeirra eigin forsendum. Á það fyrst og fremst við um málefni er snerta börn á einn eða annan hátt og þau þekkja af eigin raun. Sem dæmi má nefna skólastarf, tómstundastarf, forvarnastarf og skipulag nánasta umhverfis.
Langflest sveitarfélög landsins eru þátttakendur í svokallaðri Staðardagskrá 21. Í 25. kafla hennar segir að þátttaka barna í ákvarðanatöku og áætlanagerð um umhverfi og þróun sé grundvallarþáttur í að langtímamarkmið verkefnisins náist.
Ungmennaráð - Unglingaráð
Umboðsmaður barna hefur í mörg ár barist fyrir því að sveitarfélögum verði gert skylt að skapa unglingum vettvang til að hafa áhrif á samfélagið. Í 2. mgr. 11. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007 segir:
Sveitarstjórnir hlutast til um að stofnuð séu ungmennaráð. Hlutverk ungmennaráða er m.a. að vera sveitarstjórnum til ráðgjafar um málefni ungs fólks í viðkomandi sveitarfélagi. Sveitarstjórnir setja nánari reglur um hlutverk og val í ungmennaráð.
Til að kanna hvort sveitarfélög væru búin að stofna eða hygðust stofna ungmennaráð sendi umboðsmaður barna spurningalista til allra sveitarfélaga á landinu í september 2008. Samkvæmt svörum frá sveitarfélögunum voru á þeim tíma starfandi ungmennaráð í 14 sveitarfélögum með um 60% íbúa landsins og 30 til viðbótar (með um 30% íbúa landsins) sögðu að það stæði til að koma á fót ungmennaráði. Önnur 30 sveitarfélög (með um 10% íbúa landsins) sögðu að það stæði ekki til að koma á laggirnar ungmennaráði. Fjögur fámenn sveitarfélög svöruðu ekki fyrirspurn umboðsmanns. Í byrjun árs 2010 var könnunin endurtekin. Kom þá í ljós að eitt sveitarfélag hafði lagt niður ungmennaráð en tvö sveitarfélög til viðbótar höfðu stofnað ungmennaráð. Á miðju ári 2010 er því staðan þannig að 18 sveitarfélög með 74% íbúa landsins eru með starfandi ungmennaráð. Niðurstaða umboðsmanns er því sú að stærstu og meðalstóru sveitarfélögin eru þau sem helst starfrækja ungmennaráð.
Prentvæn útgáfa