Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Kynlíf og sambönd

Friðhelgi einkalífs
Virðing ábyrgð vellíðan
Algengar spurningar
Aðstoð og ráðgjöf í boði

Friðhelgi einkalífs
Foreldrar ykkar bera ábyrgð á velferð ykkar til 18 ára aldurs. Almennt  er talið að  foreldrar hafi rétt til að ákveða hvers konar uppeldi þeir veita börnum sínum en að of mikil íhlutun í málefni þeirra geti verið andstæð grundvallarreglum um sjálfsákvörðunarrétt einstaklings og  friðhelgi einkalífs, sbr. 71. gr. stjórnarskrárinnar. Í friðhelgi einkalífs felst fyrst og fremst réttur manns til að ráða yfir lífi sínu og líkama og njóta friðar um lífshætti sína og einkahagi. Litið er svo á að tilfinningalíf og tilfinningasambönd við aðra njóti verndar samkvæmt stjórnarskrárákvæði þessu þó að línan á milli þess hvað fellur undir skyldu foreldra til að vernda börn sín og hvað fellur undir of mikla afskiptasemi foreldra geti stundum verið óljós.

Virðing ábyrgð vellíðan
Í sambandi við kynlíf unglinga er mikilvægt að hafa í huga að hver og einn ræður yfir líkama sínum sjálfur og enginn annar hefur rétt til að ákveða hvað gert er við líkama þeirra.  

  • Kynlíf á að snúast um vellíðan, ánægju, virðingu, traust og ábyrgð.
  • Mikilvægt er að unglingar tileinki sér virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.  Einstaklingur sem þekkir verðleika sína og býr yfir nægilegri sjálfsvirðingu til að setja mörk og sætta sig ekki við hvað sem er, á auðveldara með að sneiða hjá óæskilegri kynlífsreynslu. 
  • Mikilvægt er að sýna ábyrgð, lesa sér til um getnaðarvarnir, kynsjúkdóma og veirusmit og hafa í huga að kynlíf með öðrum getur bæði haft jákvæð og neikvæð áhrif á líkamlega og andlega líðan. 
  • Líkurnar á alvarlegum afleiðingum kynlífs, eins og kynsjúkdómum og þungunum, aukast eftir því sem unglingar byrja fyrr að stunda kynlíf og bólfélögum fjölgar.

Algengar spurningar
Hvenær má byrja að sofa hjá?
Það segir hvergi beint í lögum að unglingar þurfi að hafa náð ákveðnum aldri til að mega stunda kynlíf.  Hins vegar er ákvæði í almennum hegningarlögum, þar sem segir að það sé refsivert að stunda kynlíf með einstaklingi sem er yngri en 15 ára. Þetta lagaákvæði miðar fyrst og fremst að því að vernda börn og unglinga fyrir misnotkun sér eldra fólks sem vill nýta sér þroska- og reynsluleysi barnanna. Þetta segir í lögunum en það er síðan annað mál að enginn ætti að byrja að stunda kynlíf með öðrum fyrr en hann er tilbúinn til þess sjálfur og gerir sér grein fyrir afleiðingum þess andlega og líkamlega. 

Hvenær mega stelpur byrja á pillunni án samráðs við foreldra? 
Lögin hafa verið túlkuð á þann veg að fyrst það er ekki refsivert að börn, 15 ára og eldri, stundi kynlíf (séu þau jafningjar og geri það bæði af fúsum og frjálsum vilja) ættu þau að hafa aðgang að getnaðarvörnum, þ.m.t. pillunni. Þess má geta að ekki eru allir sammála um þessa túlkun og margir telja að stúlkur ættu að vera sextán ára til að fá lyfseðil til að fá pilluna.

Aðeins læknar geta gefið út lyfseðla (annað hvort á pappír eða með því að senda rafrænan lyfseðil í lyfjagátt apótekanna). Svo þarf að framvísa lyfseðlinum í apótekinu og þá fær maður pilluna afhenta gegn greiðslu. Yfirleitt er betra að leyfa foreldrum að vera með í ráðum þegar ákvörðun er tekin um það að byrja á pillunni. Þau bera jú ábyrgð á börnum sínum og hafa áhuga á því að vita hvað þau eru að gera. Pillan inniheldur hormón og er því í raun inngrip í líkamsstarfsemi barnsins. Aukaverkanir geta líka verið ýmsar og því er mikilvægt að foreldrar séu hafðir með í ráðum og viti um ástæður þeirra til að geta brugðist sem best við og hjálpað barni sínu. 

Hvenær mega stúlkur fara í fóstureyðingu án þess að foreldrar viti?
Í 13. grein laga nr. 25/1975 um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir segir að sé kona yngri en 16 ára eða svipt sjálfræði, skuli foreldrar eða lögráðamaður taka þátt í umsókn um fóstureyðingu með henni nema sérstakar ástæður mæli gegn því. Því má segja að ef ósjálfráða stúlka, 16 eða 17 ára, óskar eftir því við lækni að framkvæmd verði hjá henni fóstureyðing þurfi hann ekki að hafa samráð við forsjáraðila stúlkunnar áður en slíkt er gert. Þetta ákvæði var reyndar sett áður en sjálfræðisaldurinn var hækkaður úr 16 í 18 ár en því hefur ekki verið breytt í takt við hækkaðan sjálfræðisaldur og er því enn í fullu gildi.

Réttindi stúlkna 16 ára og eldri til að láta framkvæma fóstureyðingu hafa því verið talin ganga því framar rétti foreldra/forsjáraðila til að ráða  yfir  persónulegum högum þeirra, sbr. fyrrgreint lagaákvæði. Hér er þó mikilvægt að hafa í huga að þó að læknar séu bundnir trúnaði við sjúklinga sína verða þeir, eins og allir aðrir, að fylgja ákvæðum laga um tilkynningarskyldu til barnaverndar ef þeir telja viðkomandi stúlku búa við óviðunandi aðstæður eða að hún stofni heilbrigði sínu í hættu með hegðun sinni.

Það verður að telja mjög eðlilegt að foreldrar vilji fá að vera með í ráðum þegar ákvörðun um fóstureyðingu er tekin, enda bera foreldrar ábyrgð á velferð og líðan barna sinna og geta í flestum tilfellum gefið börnum sínum góð ráð og stuðning. Því fylgir mikið álag að láta framkvæma fóstureyðingu og það getur haft ýmis konar afleiðingar, bæði líkamlegar og andlegar og þeir sem ganga í gegn um þessa lífsreynslu þurfa á miklum stuðningi að halda frá sínum nánustu. Það er yfirleitt best að stúlkan (og drengurinn þegar það á við) setjist niður með foreldrum sínum og ræði þetta. Foreldrunum ber að sjálfsögðu að hlusta á stúlkuna, taka réttmætt tillit til skoðana hennar og virða rétt hennar til að ráða yfir líkama sínum.

Aðstoð, ráðgjöf og fræðsla í boði
Ef þú ert að leita upplýsinga um sambönd, kynlíf, kynsjúkdóma, getnaðarvarnir og fleira því tengdu er heilmikið af upplýsingum í boði, t.d. í bæklingum og á netinu. Best er að leita upplýsinga og ráða hjá fagfólki, eins og t.d. læknum, hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum eða félagsráðgjöfum. Hér á síðunni eru þeir aðilar sem umboðsmaður mælir með að unglingar leiti til með spurningar og vandamál sem tengjast kynlífi og samböndum.

Skólahjúkrunarfræðingurinn
Grunnskólanemar geta leitað til skólahjúkrunarfræðings með spurningar um kynlíf, getnaðarvarnir eða kynsjúkdóma.

Heilsugæslan
Krakkar geta leitað til heilsugæslustöðvanna með alls konar spurningar og vandamál sem tengjast heilsu og líðan. Hérna er listi yfir allar heilsugæslustöðvar á landinu, heimasíður þeirra, netföng o.fl.

Ástráður — Félag læknanema um forvarnir
Á heimasíðu félags læknanema um forvarnir,
www.astradur.is, má finna upplýsingar um ýmislegt sem tengist kynlífi, kynsjúkdómum, þungunum, getnaðarvörnum og nauðgunum. Hægt er að senda læknanemunum tölvupóst í fullum trúnaði á netfangið leyndo@astradur.is.

Kvennasvið Landspítalans
Á Kvennasviði Landspítala — háskólasjúkrahúss starfa félagsráðgjafar sem veita símaráðgjöf alla virka daga kl. 9:0010:00. Félagsráðgjafarnir veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf varðandi þunganir, fóstureyðingar, kvensjúkdóma og félagsleg réttindi. Símanúmerið er 5433600. Eftir kl. 10 er hægt að skilja eftir skilaboð í talhólfi.

Landlæknir
Landlæknisembættið annast fræðslu til almennings um heilsueflingu, forvarnir og lýðheilsu. Nánari upplýsingar eru á heimasíðunni
www.landlaeknir.is.

Doktor.is
Á heilsuvefnum www.doktor.is er að finna greinargóðar upplýsingar um ýmislegt sem tengist kynlífi, kynsjúkdómum og þungun.

Samtökin ‘78
Á heimasíðu Samtakanna ‘78, félags lesbía og homma á Íslandi, er að finna ýmsar upplýsingar um tví- og samkynhneigð.
Ungliðahópur Samtakanna 78 er ætlaður hinsegin ungmennum á aldrinum 14 - 20 ára. Nánari upplýsingar um starf hópsins er að finna hér á vefsvæði hópsins. Hópurinn er á Facebook.

Alnæmissamtökin á Íslandi
Alnæmissamtökin vinna að því að auka þekkingu og skilning á alnæmi og að styðja sjúka og aðstandendur þeirra. Skrifstofa félagsins er til húsa að Hverfisgötu 69, 101 Reykjavík og er hún opin frá kl. 12:0016:00 mán.fim. Síminn þar er 5528586. Félagsráðgjafi er í húsinu til viðtals á miðvikudögum kl. 13:0015:00. Heimasíða alnæmissamtakanna er www.aids.is og tölvupóstfangið er aids@aids.is.

Göngudeild húð- og kynsjúkdóma
Göngudeild húð- og kynsjúkdóma er á Landspítalanum í Fossvogi. Síminn þar er 543
6050. Tímapantanir eru milli 8:1515:45 alla virka daga en hjúkrunarfræðingar veita líka ráðgjöf og fræðslu um húð- og kynsjúkdóma í síma.

Hjálparsími Rauða krossins 1717
Þessi sími er opinn öllum þeim sem líður illa eða finnst lítill tilgangur með lífinu.

Tótalráðgjöfin
Tótalráðgjöfin er ætluð ungu fólki sem vantar aðstoð og ráðgjöf fagfólks til að leysa úr alls kyns vandamálum. Hægt er að hringja í síma 5204600, koma (í Hitt húsið, Pósthússtræti í Reykjavík) eða senda tölvupóst. Meðal þeirra sem standa að Tótal-ráðgjöfinni eru fræðslusamtök um kynlíf og barneignir sem hafa mikla reynslu í að ráðleggja ungu fólki og miðla til þess upplýsingum í tengslum við kynlíf og ýmislegt sem tengist því. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.totalradgjof.is. 

 









Mynd af unglingum við lærdóm

Umboðsmaður barna...

... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
 
... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
 
... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
 
... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra