Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Einelti

Hvað er einelti?
Einkenni þolenda eineltis
Einelti í skólum

Einelti með nýjum miðlum

Meiri upplýsingar

Aðstoð og ráðgjöf í boði

Hvað er einelti?
Einelti er ofbeldi. Margar skýringar hafa verið gefnar á hugtakinu einelti, m.a. þessi hér:

Einelti er niðurlægjandi áreitni eða ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, sem stýrt er af einstaklingi eða hópi og beinist að einstaklingi sem ekki tekst að verja sig. Einelti felur í sér að einstaklingur er tekin fyrir með síendurtekinni stríðni, látbragði, niðrandi ummælum og sögusögnum, andlegri kúgun, hótunum af ýmsu tagi, líkamlegri misbeitingu, félagslegri höfnun eða markvissri útskúfun.

Einelti hefur margvíslegar birtingarmyndir. Hér eru dæmi um nokkrar:

  • Uppnefni, stríðni eða niðurlægjandi athugasemdir. Þeir sem beita ofbeldinu hvíslast á um fórnarlambið, flissa og hlæja.
  • Barnið er skilið útundan í leik, því er ekki boðið í afmælisveislur eða aðrar uppákomur hjá bekkjarfélögum, Barnið þarf að þola svipbrigði, augnagotur, þögn eða algert afskiptaleysi.
  • Eigum fórnarlambsins er stolið, t.d. skólabókum, pennaveski, skólatösku, nesti eða íþróttafatnaði eða þessir hlutir eyðilagðir.
  • Barnið er þvingað til að gera eitthvað sem stríðir algerlega gegn réttlætiskennd þess og sjálfsvirðingu, s.s. girt niður um barnið, það látið eyðileggja eigur annarra, jafnvel skólans. Barnið fær neikvæð SMS-skilaboð og hótanir.
  • Gengið er í skrokk á barninu, það barið, klórað og hárreytt, sparkð er í það og því hrint.

Yfirleitt ríkir ójafnvægi í persónulegum og/eða líkamlegum styrk geranda og þolanda, þannig að þolandi stendur höllum fæti gagnvart geranda/gerendum.

Sá sem verður fyrir eineltinu (ofbeldinu) er kallaður þolandi og sá eð aþeir sem beita eineltinu (ofbeldinu) eru kallaðir gerendur.

Einkenni þolenda eineltis 
Þeim sem er lagður er í einelti líður illa. Hann verður öryggislaus, einmana, hrætt og tortrygginn. Einstaklingur sem verður fyrir einelti eða ofbeldi segir oft ekki frá því heldur skammast sín og kennir sjálfum sér jafnvel um og finnst eitthvað vera að sér. Þess vegna er mjög áríðandi að allir þekki einkenni eineltis. 
Hugsanlega er um einelti að ræða ef viðkomandi:

  • kvartar undan vanlíðan (t.d. magaverk eða höfuðverk) á morgnana,
  • vill ekki fara í skólann, er hræddur við að ganga einn í skólann eða heim,
  • kemur heim í öllum hléum í skólanum,
  • hættir að sinna náminu eins vel og áður,
  • fer að koma heim með rifin föt og skemmdar námsbækur,
  • kemur heim með marbletti eða skrámur sem hann getur ekki útskýrt,
  • leikur sér ekki við önnur börn,
  • vill ekki taka þátt í félagsstörfum í skólanum,
  • verður árásargjarn og erfiður viðureignar,
  • byrjar að stama,
  • missir sjálfstraustið og neitar að segja frá hvað amar að.

Ef þú kannast við þetta hjá vini þínum eð einhverjum sem þú þekkir er mikilvægt að láta foreldra eða starfsfólk skólans vita.

Einelti í skólum
Nauðsynlegt er að viðurkenna að einelti á sér stað í skólum, óháð stærð og staðsetningu. Áhrifaríkasta tækið sem skólinn hefur yfir að ráða í baráttunni gegn einelti eru nemendurnir sjálfir. Þó að meirihluti nemenda eigi ekki beina aðild að einelti veit þessi hópur hins vegar oft af eineltinu löngu áður en hinir fullorðnu fá vitneskju um það. Mikilvægt er að skólanum takist að fá þennan hóp „hlutlausra áhorfenda“ til að taka afstöðu gegn einelti í verki og tilkynna um það til starfsfólks skólans.

Best er að allir nemendurnir þekki einelti og hversu vont það er fyrir barn að verða fyrir því. Þá geta nemendur staðið saman um að vera á móti einelti og unnið með starfsfólki skólans í baráttunni gegn einelti.

Samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla (almennum hluta) verður í hverjum skóla að vera til áætlun um hvernig skuli brugðist við ef upp kemst um einelti í skólanum og öllum aðilum þarf að vera ljóst hver vinnur með slík mál innan skólans og hvernig. Mjög margir grunnskólar landsins starfa eftir Olweusarkerfinu svokallaða við meðferð eineltismála.

Einelti með nýjum miðlum
Nokkuð hefur borið á því að börn og unglingar noti netið (t.d. bloggsíður eða MSN) og GSM-síma til að leggja fórnarlömb sín í einelti. Niðrandi ummæli, hótanir og móðganir með þessum miðlum ná enn nær fórnarlambinu því að með þessu móti fær það ekki einu sinni frið á heimilinu. Mjög mikilvægt er að láta foreldra vita ef slíkt á sér stað. Landssamtökin Heimili og skóli
starfrækja SAFT-verkefnið svokallaða en meginmarkmið þess er að hvetja til ábyrgrar og öruggrar netnotkunar barna og unglinga. Starfsfólk SAFT-verkefnisins veitir ráðgjöf þeim sem hafa reynslu af einelti á netinu eða í farsíma.

Meiri upplýsingar
Á Netinu er mikinn fróðleik að finna um einelti, t.d:

Aðstoð og ráðgjöf í boði
Einelti kemur öllum við. Þegar upp koma eineltismál eru til ýmsar leiðir til að leita sér aðstoðar. Þolendur eineltis þarfnast ekki einungis hjálpar, heldur einnig gerendurnir. Eftirfarandi aðilar veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf um einelti.

Hjálparsími Rauða krossins 1717
Þessi sími er opinn öllum þeim sem líður illa eða finnst lítill tilgangur með lífinu.

Kirkjan
Mörgum finnst gott að tala við sóknarprestinn sinn um viðkvæm og persónuleg mál, enda eru prestar bundnir trúnaði.

Olweusarverkefnið gegn einelti
Olweusarverkefnið er samstarfsverkefni menntamálaráðuneytisins, Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla með stuðningi Kennaraháskóla Íslands. Framkvæmdastjóri Olwesuarverkefnisins á Íslandi er Þorlákur H. Helgason. Hægt er að hafa samband við Þorlák í síma 894–2098 eða á netfangið
thorlakur@khi.is. Þorlákur veitir ráðgjöf þeim sem til hans leita vegna eineltismála í grunnskólum. Heimasíðan er www.olweus.is.

SAFT–verkefni Heimilis og skóla
SAFT stendur fyrir samfélag, fjölskylda og tækni. Verkefnið er vakningarátak um örugga netnotkun barna og unglinga og hluti af aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB. Menntamálaráðuneytið sem hefur falið Heimili og skóla–landssamtökum foreldra að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins.

Skólaskrifstofa sveitarfélagsins
Á skólaskrifstofu sveitarfélagsins (Menntasviði í Reykjavík) starfa sérfræðingar sem veita skólunum og nemendum þeirra faglegan stuðning.

Starfsfólk skólans
Ef um er að ræða einelti í skólanum er nauðsynlegt að umsjónarkennari viti af því til að hægt sé að bregðast við því. Grunnskólanemar eiga að geta leitað til umsjónarkennara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðings með trúnaðarmál.

Starfsfólk félagsmiðstöðvar
Ef eineltið á sér stað í félagsmiðstöð er mikilvægt að starfsfólkið sé látið vita. Starfsfólkið á að hafa þekkingu og reynslu til að taka á málinu og leiðbeina.

Starfsfólk félags eða stofnunar
Ef eineltið á sér stað í íþrótta- eða tómstundastarfi er mikilvægt að starfsfólk sé látið vita. Starfsfólkið eða a.m.k. forstöðufólk ætti að geta tekið á eineltinu og leiðbeint um viðeigandi aðgerðir.

Tótalráðgjöfin
Tótalráðgjöfin er ætluð ungu fólki sem vantar aðstoð og ráðgjöf fagfólks til að leysa úr alls kyns vandamálum. Hægt er að hringja í síma 520–4600, koma (í Hitt húsið, Pósthússtræti í Reykjavík) eða senda tölvupóst. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni
www.totalradgjof.is.

Regnbogabörn
Regnbogabörn eru fjöldasamtök áhugafólks um eineltismál. Hjá samtökunum er hægt að fá viðtal og eftirfylgni vegna eineltismála. Símanúmerið er 555–0862 og heimasíðan er www.regnbogaborn.is.







 



Mynd af unglingum við lærdóm

Umboðsmaður barna...

... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
 
... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
 
... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
 
... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra