
|
Hvernig mál tekur umboðsmaður barna fyrir? |
|
Umboðsmaður barna vill vera í góðu sambandi við börn og unglinga og heyra beint frá þeim sjálfum um þau mál sem þeim finnst mikilvægt að tekin verði til meðferðar.
Umboðsmaður barna lætur til sín taka á fjölmörgum sviðum. Í rauninni er honum ekkert óviðkomandi ef það varðar hagsmuni, þarfir og réttindi barna og unglinga. Umboðsmaður lætur sig varða börn sem lögð eru í einelti, börn sem eru í fíkniefnaneyslu, börn sem þurfa á sérstakri hjálp að halda vegna geðrænna, líkamlegra eða tilfinningalegra vandamála. Hann hugsar um börn sem búa í bæjum og sveitum, börn sem eiga foreldra sem sinna þeim ekki, börn sem farið er illa með eða er misþyrmt og yfirleitt öll börn, hver sem þau eru, og hvar sem þau búa á Íslandi. Umboðsmaður vill vinna að því að menning og listir verði aðgengilegri fyrir börn og unglinga; að börn og unglingar eigi jafna möguleika á að sækja leikhús, fara á tónleika, myndlistarsýningar, í kvikmyndahús, á íþróttakappleiki o.fl.
|
